Álafosskvosin er vagga lista

19.3.2009
Álafossull er á við gull! Í Álafosskvosinni er Álafossbúðin, sem selur afurðir úr íslenskri ull. Í búðinni má finna ýmsar vörur og handverk sem tengist íslensku ullinni. Þar er einnig starfrækt gallerý, þar sem verk margra kunnra íslenskra listamanna eru til sýnis og sölu. Íshamar Fyrirtækið Íshamar er einnig með starfsemi sína í Álafosskvosinni. Íshamar ehf, var stofnað 20. desember árið 2000 af Gunnari Helgasyni og Guðlaugu Daðadóttur. Tilgangur með stofnun Íshamars er að vinna að viðhaldi bygginga, við nýbyggingar og hvers konar starfsemi tengda smíðum. Starfsmenn Íshamars hafa lagt metnað sinn í vönduð og fagleg vinnubrögð. Vefirnir eru uppsettir í Summit CMS, vefumsjónarkerfi IGM. Og komum við að öllum þáttum í hönnun, verkefnstjórnun, ráðgjöf og forritun fyrir vefsíður Álafoss og Íshamars. Starfsfólk IGM óskar Álafossbúðinni og Íshamri til hamingju með glæsilegar vefsíður og um leið hvetjum við alla Íslendinga til að velja íslenskt og heimsækja þessa litlu paradís í kvosinni!!