Emami velur StoreFront frá Atómstöðinni.

23.12.2009
Emami er nýtt og ferskt íslenskt hönnunarteymi sem leggur metnað sinn í hönnun á breytanlegum fötum. Áhersla er lögð á að skapa glæsilegan fatnað sem byggir á sama hugtaki og limitless kjóllinn sem kom frá okkur fyrst; fjölbreytileiki og framúrstefnuleg hönnun úr vönduðum efnum. Við viljum að fötin séu takmarkalaus þannig að hver og einn getur skapað sér sinn einstaka stíl með því að láta sköpunargleðina ráða. Lögvarinn höfundarréttur er á allri hönnun Emami.

StoreFront er öflugt netverslunarkerfi sem hentar fyrir einfaldar sem og stórar verslanir þar sem vöruúrvalið skiptir hundruðum þúsunda.
StoreFront er vottað af greiðslufyrirtækjum hér á landi. Að auki er kerfið PCI vottað sem tryggir hámarksöryggi gagna.

Sjá má vefinn nánar á www.emami.dk