Samtök vefiðnaðarins boða til Íslensku vefverðlaunanna 2009 sem fara nú fram í níunda sinn þann 12. febrúar 2010. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og verður skráning opin á vef Samtaka vefiðnaðarins, http://svef.is/islensku-vefverdlaunin/ fram til 31.janúar 2010.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Þátttaka er opin öllum íslenskum vefjum og mun sérskipuð dómnefnd fagfólks vinna úr tilnefningum og velja bestu vefina í eftirfarandi flokkum:
-
Besti sölu- og kynningarvefurinn (fyrirtæki/félög og stofnanir með fleiri en 50 starfsmenn)
- Besti sölu- og kynningarvefurinn (fyrirtæki/félög og stofnanir með færri en 50 starfsmenn)
- Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
- Besta markaðsherferðin á netinu
- Besti smá- eða handtækjavefurinn
- Besti afþreyingar- og/eða fréttavefurinn
- Besti blog/efnistök/myndefni
Þar að auki velur dómnefndin:
-
Besta útlit og viðmót
-
Frumlegasti vefurinn
- Besti íslenski vefurinn
Flokkarnir hafa breyst þó nokkkuð frá fyrri árum og má sjá nýja flokka þarna inni t.a.m. besta smá- og handtækjavefinn ásamt bestu markaðsherferðinni á netinu.
Það er mikill heiður og viðurkenning fólgin í því að vera útnefndur í hverjum flokki og viljum við hvetja alla sem halda út vefsvæði að taka þátt. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að stærð og kostnaður skiptir ekki máli þegar um góðan vef er að ræða.
Tilnefna vef :
http://svef.is/islensku-vefverdlaunin/tilnefna-vef/