Disill Sales / Bookings er ferðasölukerfi í Dísil CMS.
Viltu auka söluna á vefnum?
Dísill Booking er algerlega veflægur hugbúnaður sem gerir notendum kleift að bóka margvíslega afþreyingu svo sem: ævintýraferðir, flugmiða, hótel, bílaleigubíla, hestaferðir, skoðunarferðir, hvalaskoðun og fleira.
Kerfið getur haldið utan um ótakmarkaðan fjölda ferða, vara eða þjónustu. Þannig gefst kaupendum möguleiki á að raða saman fullkomnum pakka sem getur krossast á fjölda söluaðila og jafnframt á vöruframboð.
Kaupendur geta borið saman ferðir, verð og útbúið sitt eigið „ferðaplan".
Dísill Booking er öflug lausn sem getur skalast með þínu fyrirtæki. Hvort sem þú vilt selja einfaldar gönguferðir, eða margslungnar skoðunarferðir með akstri og bátsferðum þá leysir Dísill Bookings málið.
Birgðarhald í kerfinu er ákaflega auðvelt og þægilegt. Aðgangsstýring er fullkomin, þriðji aðili getur td. haft fulla stjórn á ákveðnum vörum eða vöruflokkum.
Dísill Booking getur tengst öllum helstu bókhaldskerfum á markaðnum í dag, svo sem Navison, DK, Tok og svo er auðvitað hægt að útbúa samskipti við sértækari kerfi um vefþjónustu eða með samskiptaskrám.
Það er okkar kappsmál að viðskiptavinir auki söluna jafnt á við gæði. Dísill Booking hefur sýnt það að þar sem lausnin er tekin í notkun hefur sala aukist til muna. Öflugustu dæmin eru 280% aukin sala (RE á milli ára). Því ber að þakka hvernig kerfið er uppbyggt. Notandi fær að raða saman vörum í körfu og getur þannig keypt marga hluti í einu og jafnframt er "uppsala" möguleg. Þannig er hægt að ná betri söluárangri án þess að viðskiptavinurinn þurfi að fara oftar en einu sinni í gegnum greiðsluferlið.
Með snertiskjám (e. kiosks) er hægt að ná til stærri hóps. Dísill Kiosk er viðbót ofan á Dísil Bookings þar sem snertiskjá með vöruframboði sem stjórnað er úr Dísil Bookings er komið fyrir á fjölförnum ferðamannastöðum. Kostir Dísil Kiosk eru m.a að talað er við sama vörugrunn þannig að "Allotment" er samnýtt, reikningsútskriftir einfaldaðar með einföldu auðkenni hvaðan færsla kemur og góð myndræn framsetning.
Dísill Booking er ódýr hnitmiðuð lausn, hönnuð með þarfir ferðaþjónustunar í huga. Ekki hika, hafðu samband eða hringdu í síma 516 - 9000